17. ágúst 2012 10:07
Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands (PSÍ) ákveði að halda vöxtum óbreyttum þann 22. ágúst nk. PSÍ hefur í síðustu yfirlýsingum sínum lagt mikla áherslu á að aukið aðhald peningastefnunnar samfara efnahagsuppgangi og minnkandi slaka í þjóðarbúskapnum, muni fyrst og fremst fara eftir framvindu verðbólgunnar. Verðbólgumælingin í júlí var hagfelld og góðar líkur eru á að ágústmælingin verði það einnig.
Hagsjá 17. ágúst 2012
Skráðu þig á póstlista