Fréttir

10. ágúst 2012 10:17

Breyting í yfirstjórn Landsbankans

Frans Páll Sigurðsson, framkvæmdastjóri Fjármála lætur í dag af störfum í Landsbankanum að eigin ósk. Frans hóf störf í Landsbankanum haustið 2010 þegar viðamiklar breytingar voru gerðar á framkvæmdastjórn bankans og átta nýir framkvæmdastjórar voru ráðnir.

„Frans hefur leitt mikið uppbyggingarstarf á sínu sviði og í bankanum í samstarfi við aðra í forystusveit hans. Frans hefur verið öflugur samstarfsmaður og vil ég fyrir hönd bankans þakka honum fyrir hans mikla framlag og óska honum alls hins besta í framtíðinni," segir Steinþór Pálsson bankastjóri.

Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri Markaða og fjárstýringar, mun taka við stjórn Fjármála en í kjölfarið verður skipulag bankans til skoðunar.