27. júlí 2012 15:53
Hagsjá: Versnandi staða í Evrópu
Af þeim 31 Evrópuríkjum sem skila landsframleiðslutölum til Eurostat falla 13 undir skilgreininguna á kreppu. Þar að auki eiga 3 Evrópuríki á hættu að lenda í kreppu þegar landsframleiðslutölur fyrir 2. ársfjórðung birtast.
Fjöldi ríkja sem eru í kreppu hefur aukist nokkuð frá haustinu 2010, þá féllu 3 ríki undir þessa skilgreiningu, þar á meðal Ísland. Dragist skuldakreppan á langinn í Evrópu gætu fleiri lönd fallið undir þá skilgreiningu að vera í kreppu.
Hagsjá 27. júlí 2012