23. júlí 2012 08:21
Vikubyrjun, mánudagurinn 23. júlí
Helstu hagtölur síðustu viku
Lítil hreyfing var á launavísitölu Hagstofunnar í júnímánuði en hún hækkaði um 0,04% milli mánaða. Vísitala neysluverðs hækkaði hinsvegar um 0,5% í júní og því dróst kaupmáttar launa saman um 0,5% milli maí og júní. Undanfarna 12 mánuði hefur vísitala launa hækkað um 6,9% en kaupmáttur launa hefur aðeins aukist um 1,4% á tímabilinu.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,5% í júní. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 6,3% að nafnvirði og 0,7% að raunvirði. Síðastliðna 6 mánuði hækkaði vísitalan um 2,6% að nafnvirði en lækkaði um 1,4% að raunvirði sem skýrist af óhagstæðri verðbólguþróun á fyrri hluta ársins.
Helstu hagtölur þessa viku
Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs (VNV) fyrir júlí á föstudaginn. Hagfræðideild Landsbankans spáir 0,3% lækkun VNV milli mánaða, sjá nánar í Hagsjá 19. júlí 2012.
Á föstudag birtir Hagstofan einnig atvinnuleysistölur úr vinnumarkaðsrannsókn sinni fyrir júnímánuð og 2.ársfjórðung þessa árs. Sama dag birtir Seðlabankinn upplýsingar um verðbréfaviðskipti í júní.
Hagtölur 23. júlí
Markaðsupplýsingar 23. júlí
Mynd vikunnar
Fyrstu 6 mánuði ársins hefur greiðslukortaveltan aukist samtals um 1,5% miðað við fyrra ár. Það er helmingi minni vöxtur milli ára en árið áður. Þar af jókst veltan hér innanlands aðeins um tæpt 1% að raunvirði meðan að veltan utan landssteinanna jókst um 6,3%. Fyrstu 6 mánuði ársins var um 9,3% af heildarveltu innlendra kreditkorta við erlend fyrirtæki en það er hærra hlutfall en mældist á sambærilegum tímabilum fyrir bankahrunið. Minni vöxtur kortaveltu í heild bendir til þess að verulega hafi dregið úr vexti einkaneyslunnar á fyrri hluta ársins, sjá nánar í Hagsjá 17.júlí 2012.