Fréttir

18. júlí 2012 16:51

Þrjár milljónir úr Menningarnæturpotti til 36 verkefna

Þremur milljónum króna var veitt í dag úr Menningarnæturpotti Landsbankans til 36 verkefna og viðburða á Menningarnótt. Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Landsbankans og Höfuðborgarstofu en bankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi.

Tilgangurinn með pottinum er að veita marga en hóflega styrki til einstaklinga og hópa sem vilja skipuleggja frumlega og áhugaverða viðburði á Menningarnótt. Þetta er þriðja árið sem veitt er úr pottinum fyrir Menningarnótt. Alls bárust 180 umsóknir í ár en aldrei hafa fleiri umsóknir borist. Stjórn Menningarnætur valdi styrkþegana.

Allur fjárstuðningur Landsbankans vegna samstarfssamnings bankans við Reykjavíkurborg um Menningarnótt er nýttur til að veita styrki úr pottinum. Stuðningurinn rennur því beint til listamanna og hópa sem koma fram á Menningarnótt. Auk stuðnings við þessi verkefni mun bankinn að sjálfsögðu verða með árvissa menningardagskrá í útibúi sínu við Austurstræti á Menningarnótt.

Gakktu í bæinn

Menningarnótt verður haldin í sautjánda sinn þann 18. ágúst næstkomandi á torgum og götum, í húsasundum, í görðum, í galleríum, verslunum, menningarstofnunum og heimahúsum. Viðburðir af öllum toga munu fylla miðborgina lífi.  Þema Menningarnætur í ár er „Gakktu í bæinn“ og vísar til þeirrar gömlu íslensku venju að bjóða gesti velkomna og gera vel við þá. Í lok Menningarnætur verður vegleg flugeldasýning.

Höfuðborgarstofa sér um skipulagningu Menningarnætur, leyfisveitingar og að kynna viðburði hátíðarinnar. Samstarfsaðilar eru Landsbankinn og Vodafone.


Mynd
Fulltrúar allra þeirra verkefna sem hlutu styrk úr Menningarnæturpotti Landsbankans.

Menningarnæturpottur - styrkþegar

Styrkir að upphæð 200.000 kr.

  • Bandalag íslenskra skáta - Skátaveröld í Hljómskálagarðinum.
  • Norræna félagið - Árleg skemmtun á Óðinstorgi.
  • Ragnheiður Sylvía Kjartansdóttir - Farandtónleikar um miðborgina til heiðurs Ingibjörgu Þorbergs í tilefni af 85 ára afmæli hennar á árinu.

Styrkir að upphæð 150.000 kr.

  • Ástarmafían - Listgjörningur bak við gler í opnu rými á áberandi stað í miðborginni þar sem vegfarendur geta fylgst með vinnslu verksins utan og innan frá.
  • Marcos Zotes - Innsetning með ljósum í varðskipinu Þór.

Styrkir að upphæð 100.000 kr.

  • Alþýðuóperan - Flutningur á atriði úr óperunni Ráðskonuríki á nokkrum stöðum í miðborginni.
  • Árni Már Erlingsson - Nútímalistahátíðin FestiSvall 2012 í Hjartagarðinum og Bíó Paradís.
  • Bönd og Bingó - Menningaruppákoma í vinnustofu Netagerðarinnar við Mýrargötu.
  • Dansverkstæðið - Námskeið fyrir gesti og gangandi í vinnustofu Dansverkstæðisins.
  • Eva Gunnbjörnsdóttir - Listgjörningur í heimahúsi á Njálsgötu sem verður opið almenningi.
  • Jazzhátíð Reykjavíkur - Setningarviðburður Jazzhátíðar Reykjavíkur í Hörpu.
  • Kramhúsið - Listviðburður með tónlist, spuna og dans fyrir gesti og gangandi.
  • Listvinafélag Hallgrímskirkju - Tónlistarviðburðurinn Sálmafoss í Hallgrímskirkju en þar flytja kórar og organistar fjölbreytta tónlist.
  • Ljóðaklúbburinn Hási Kisi - Verkefnið Skáld til sölu þar sem vegfarendur geta greitt táknrænt gjald fyrir ljóðaupplestur.
  • Skýjaborg - Danssýning fyrir yngstu börnin í Tjarnarbíói þar sem litir, form, ljós og tónlist tala til barnanna.
  • Stefnumót - Tónleikar í Fríkirkjunni þar sem Gunnar Gunnarsson organisti og Ellen Kristjánsdóttir söngkona flytja lög um ástina.

Styrkir að upphæð 50.000 kr.

  • Anna Dröfn Ágústsdóttir - Sögu- og menningarsýning um salerni í Reykjavík í "Núllinu" - almenningssalerni í Reykjavík.
  • Bryggjan kaffihús í Sjóminjasafninu - Barnaskemmtun í Sjóminjasafninu Víkinni við Grandagarð.
  • Fjörkálfur - Flutningur á tónverkinu Fjörkálfi sem samið er fyrir börn en í því er blandað saman sögum og lifandi tónlist.
  • Friða Martins og Mamiko Dís Ragnars - Samskynjunar-listmálun með því að mála eftir lifandi tónlist sem tekur áhorfendur í heim fjölþættra listskynjunar í Grandagarði.
  • Gerður Bolladóttir og Victoria Tarevskaia - Flutningur á íslenskum þjóðlögum í útsetningu Ferdinands Reuter og Hildigunnar Rúnarsdóttur og sönglög eftir 19. aldar tónskáld í Listasafni Einars Jónssonar.
  • Hallveig Rúnarsdóttir - Söngskemmtun Hallveigar þar sem fluttar verða indælar aríur og elskuleg lög í Dómkirkjunni.
  • Harmonikufélag Reykjavíkur - Harmonikkudansleikur hjá taflborðinu við Bernhöftstorfuna.
  • Járnbraut 2012 - Sýning á starfsemi listafélagsins Járnbrautar á Grandasvæðinu.
  • Kristján Hreinsson - Flutningur á þrettán sonnettum um heimspeki eftir Kristján við tónlist eftir Þorvald Gylfason. Flytjendur verða Bergþór Pálsson við undirleik Þóris Baldurssonar.
  • Kvikmyndahátíðin Reykjavík Shorts & Docs - Sýning á úrvali stuttmynda og heimildamynda í Bíó Paradís og víðar.
  • Ljóðahópur Gjábakka - Ljóðadagskrá með tónlistarívafi í Mæðragarðinum við Lækjargötu.
  • Möguleikhúsið - Leiksýningin Völuspá í Norræna húsinu.
  • Norræna húsið - Ljósmyndasýningin "Autobahn" eftir Jimi Tenor.
  • Origami Ísland - Origami-gjörningur með þátttöku almennings en markmiðið er að búa til fuglabjarg, fyllt af pappírsfuglum.
  • Óháð listahátíð - Óháða listahátíðin er vettvangur allra listgreina og yngra og eldra listafólks. Hátíðin verður haldin vítt og breitt um bæinn.
  • Skákakademía Reykjavíkur - Skáktjald á Lækjartorgi og gestum og gangandi boðið að tefla.
  • Skuggamyndir frá Býsans - Balkantónleikar á Café Haiti með góðum gestum.
  • Tangóævintýra-félagið - Tangóveisla fyrir alla í Gyllta salnum á Hótel Borg þar sem boðið verður upp á námskeið fyrir almenning og tangósýningar.
  • The Weird Girls Project - Listgjörningur með körlum og konum á öllum aldri.
  • Tónleikar í garðinum - Tónleikar í garði við Ingólfsstræti 21a.