Fréttir

16. júlí 2012 09:48

Vikubyrjun, mánudagurinn 16. júlí

Helstu hagtölur síðustu viku

Skráð atvinnuleysi í júní mældist 4,8% samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun en atvinnuleysi var seinast undir 5% í desember 2008. Að meðaltali voru 8.704 atvinnulausir í júní en þeir voru 11.704 á sama tíma í fyrra. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum (7,5%) en minnst á Norðurlandi vestra (1,2%).

Heildarvelta íslenskra greiðslukorta (debet og kredit) var 66,4 ma.kr. í júní og jókst um 6,6% miðað við sama mánuð í fyrra, á raunvirði jókst heildarveltan um 1,1%. Velta íslenskra korta erlendis var 6,9 ma.kr. sem er aukning um 9,4% miðað við sama mánuð í fyrra, 3,7% raunaukning. Velta erlendra korta hér á landi var 9,5 ma.kr. Um er að ræða aukningu um 19% miðað við sama tíma í fyrra, 12,9% að raunvirði. Sú aukning bendir til nokkurs uppgangs í ferðaþjónustu hérlendis.

Helstu hagtölur þessa viku

Í vikunni birtir Þjóðskrá vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu (þriðjudag) og upplýsingar um leiguverð íbúða (miðvikudag). Hagstofan birtir á föstudag mánaðarlega launavísitölu. Á föstudag verður útboð á ríkisbréfum.

Hagtölur 16. júlí
Markaðsupplýsingar 16. júlí

Mynd vikunnar

Á fyrstu misserunum eftir hrun jukust makaskipti mikið í viðskiptum á fasteignamarkaði. Erfitt var um fjármögnun og staða fólks tiltölulega slæm. Makaskipti tengdust þannig upp undir helmingi kaupsamninga á tímabili. Eftir því sem tíminn hefur liðið hefur markaðurinn leitað aftur í eðlilegra horf. Myndin að neðan sýnir fasteignaviðskipti þar sem makaskipti komu við sögu ársfjórðung fyrir ársfjórðung frá upphafi árs 2007.