Fréttir

09. júlí 2012 09:59

Vikubyrjun, mánudagurinn 9. júlí

Helstu hagtölur síðustu viku

Þjóðhagsspá Hagstofunnar, sem kom út í Hagtíðindum í sl. viku, gerir ráð fyrir 2,8% hagvexti á þessu ári og 2,7% á næsta ári. Hagstofan telur að einkaneysla muni aukast um 3,2% og fjárfesting um 12,6% á árinu. Þessir tveir liðir munu einnig halda uppi hagvexti út spátímann. Gert er ráð fyrir að samneyslan vaxi á bilinu 0,2-0,5% árin 2012-2014. Einnig er spáð áframhaldandi, en þó minnkandi, afgangi af utanríkisviðskiptum vegna veiks gengis krónunnar. Launa- og verðlagsspá fyrir 2013 er óviss, hún er m.a. háð því hvort endurskoðunarákvæði kjarasamninga í ársbyrjun 2013 verði virk eða ekki.

Gallup birti væntingavísitölu sína í vikunni. Fyrir júnímánuð mældist vísitalan 79,9 stig, sem er hækkun um 6,6 stig frá því í maí. Júní var þriðji mánuðurinn í röð sem mældi auknar væntingar neytenda milli mánaða og kemur það ekki á óvart í ljósi jákvæðra frétta af innlendu efnahags- og atvinnulífi undanfarið. Væntingavísitalan sjálf hefur ekki tekið hærra gildi síðan í maí 2008, þá var hún 82,7 stig.

Helstu hagtölur þessa viku

Lánamál ríkisins gefa út mánaðarlegt rit sitt, Markaðsupplýsingar, á mánudaginn. Sama dag veitir Seðlabanki Íslands upplýsingar um erlenda stöðu sína. Á föstudaginn birtir Vinnumálastofnun atvinnuleysistölur fyrir júnímánuð.

Hagtölur 9. júlí

Markaðsupplýsingar 9. júlí

Mynd vikunnar

Samkvæmt gögnum Hagstofunnar fjölgaði gistinóttum á hótelum í maí um 15,4% frá fyrra ári. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 8,2% og gistinóttum útlendinga um 17,1% á sama tímabili. Gistinætur erlendra gesta voru um 82% af heildarfjölda gistinátta. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum frá því í maí 2011 um 19,6%. Gistinóttum fjölgaði einnig milli ára á Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi en fækkaði á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum.

Gistinætur erlendra gesta á hótelum í maí