Fréttir

06. júlí 2012 13:46

Rangar færslur í greiðslukortakerfum; unnið er að lagfæringu

Reiknistofa bankanna vinnur að lagfæringum á villum sem upp komu í greiðslukortakerfum í gær. Villan hafði áhrif á um 2% debetkorta í landinu. Vinnu við leiðréttingu verður lokið fyrir klukkan 16:00 í dag.

Reiknistofa bankanna sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu fyrr í dag:

"Vegna villu í hugbúnaði einstakra sjálfsafgreiðslutækja urðu til rangar færslur í greiðslukortakerfum landsins. Villan hafði áhrif á um 2% debetkorta í landinu og hefur Reiknistofa bankanna unnið í samvinnu við útgefendur og færsluhirða greiðslukorta að leiðréttingu þeirra reikninga sem villan hafði áhrif á.

Vinnu við leiðréttingu verður lokið fyrir klukkan 16:00 í dag."