Fréttir

22. júní 2012 16:07

Sala Landsbankans á rekstrafyrirtækjum í óskyldri starfsemi

Eftir endurreisn bankakerfisins var mjög við því varað að bankar myndu vegna efnahagserfiðleika yfirtaka fjölda fyrirtækja í samkeppnisrekstri og halda þeim hjá sér um langa hríð. Landsbankinn markaði sér fljótlega stefnu um að hraða sölu slíkra fyrirtækja og setti reglur um hvernig þeirri sölu skyldi háttað.

Á síðustu 24 mánuðum hefur Landsbankinn lokið við að selja öll lífvænleg fyrirtæki í óskyldum rekstri sem hann hefur fengið yfirráð yfir í kjölfar rekstrarerfiðleika þeirra. Öll þessi rekstrarfélög eru nú komin í hendur eigenda sem geta einbeitt sér að uppbyggingu þeirra og vexti á komandi árum.

Þau fyrirtæki sem seld hafa verið eru Eignarhaldsfélagið Vestia (Húsasmiðjan, Vodfone, Skýrr, Teymi og Plastprent), Icelandic Group, Límtré Vírnet, Björgun, Pizza Pizza, Parlogis, Sólning og fleiri. Þá seldi bankinn nýverið hlut sinn í Verði Tryggingum og Verði Líftryggingum auk þess að selja fjölda fasteigna og skráðra og óskráðra verðbréfa. Nú hefur 75% hlutafjár dótturfélagsins Regins verið selt og sú sala styrkir uppbyggingu hlutabréfamarkaðar.

Með þessum hætti hefur tekist að lækka verðmæti eigna sem Landsbankinn hefur haft til sölu um nálega 100 milljarða króna. Þetta styrkir fjárhagsstöðu bankans og einfaldar og skýrir rekstur hans til mikilla muna og ber með sér að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja í kjölfar hrunsins fer senn að ljúka.

Við sölu fyrirtækja fylgir Landsbankinn ákveðnum reglum og þeim sjónarmiðum sem Samkeppniseftirlitið beinir til fjármálafyrirtækja vegna yfirtöku á fyrirtækjum í samkeppnisrekstri. Rekstrarfyrirtæki eru auglýst og boðin til sölu á almennum markaði, brjóti það ekki gegn samningum eða lögvörðum hagsmunum viðskiptavina bankans. Áætlanir um sölu fyrirtækja í samkeppnisrekstri eru kynntar innan sex mánaða frá yfirtöku þeirra og þau verðmetin af viðurkenndum sérfræðingum.

Landsbankinn mun áfram með milligöngu fagmanna selja minni fasteignir, fasteignafélög, ökutæki og lausafjármuni sem hann eignast. Lýsingu á söluferli fullnustueigna má finna hér á vef bankans.