21. júní 2012 18:53
Upplýsingar um úthlutun í áskriftarhluta útboðs í Regin hf.
Áskriftarvefur
Nú geta fjárfestar sem skráðu áskrift sína í hlutafjárútboði í Regin hf. á áskriftarvef nálgast upplýsingar um úthlutun í útboðinu og greiðslufyrirmæli. Nota skal sömu aðgangsauðkenni og við skráningu áskriftar.
Heildareftirspurn í útboðinu nam 10,3 milljörðum króna. Heildarsöluverðmæti útboðsins var 7.895 milljónir króna. Tekið var tilboðum í 963 milljónir hluta en Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf. ákvað að halda eftir rúmlega 12 milljónum hluta í Regin til þess að selja til viðskiptavaka. Við skráningu mun Eignarhaldsfélag Landsbankans eiga 25% hlut í Regin.
Útboðsgengi hefur verið ákveðið 8,2 krónur á hlut. Allir sem buðu verð á eða yfir útboðsgengi og tilgreindu hámarksverð á eða yfir útboðsgengi fá úthlutað hlutum. Tilboðum undir útboðsgengi var hafnað.
Hluthafar í Regin verða tæplega eitt þúsund og að frátöldu Eignarhaldsfélagi Landsbankans ehf. sem á 25% hlut í félaginu, eiga allir hluthafar minna en 10% hlut hver.
Tengdar fréttir