15. júní 2012 17:29
Landsbankinn greiðir af skuldabréfi á undan áætlun
Landsbankinn hf. og Landsbanki Íslands hf. (LBI) sem nú er í slitameðferð hafa samið um að Landsbankinn fyrirframgreiði fjórðung af höfuðstól svokallaðra A–skuldabréfa sem gefin voru út árið 2010 vegna mismunar á virði yfirtekinna eigna og skulda frá LBI. Fyrirframgreiðslan er að jafnvirði rúmlega 73 milljarða króna í evrum, dollurum og pundum.
Fyrirframgreiðslan mun ganga að fullu inn á fyrstu 5 af 20 ársfjórðungslegum afborgunargjalddögum skuldabréfanna, sem áttu að hefjast í janúar 2014. Næsta afborgun höfuðstóls verður því í apríl 2015 í stað janúar 2014, en lokagjalddagi er í október 2018.
Sterk lausafjárstaða bankans í erlendri mynt gerir honum kleift að greiða niður langtímaskuldir hraðar en samningsbundin ákvæði segja til um. Samfara því lækkar fjármagnskostnaður bankans og vegur sú lækkun mun þyngra en sú ávöxtun sem laust fé í erlendri mynt skilar bankanum. Að auki mun hlutfall veðsettra eigna á efnahagsreikningi bankans minnka verulega.
Fyrirframgreiðslan hefur einnig þau áhrif að samningsbundnar takmarkanir á heimild bankans til að veðsetja eignir vegna annarra skuldbindinga falla úr gildi. Það mun opna fyrir möguleika á fjölbreyttari fjármögnun og styrkja þannig samkeppnisstöðu Landsbankans.
Samkomulag Landsbankans og LBI er afar mikilvægur áfangi í áframhaldandi uppbyggingu Landsbankans, þar sem fyrrnefnd fyrirframgreiðsla lækkar skuldir bankans umtalsvert og auðveldar endurfjármögnun bankans.