12. júní 2012 12:17
Myndskreytingar í auglýsingum Landsbankans fá gullverðlaun
Siggi Eggertsson hlaut gullverðlaun fyrir myndskreytingar sínar, sem hann vann í samstarfi við auglýsingastofuna Jónsson & Le´Macks fyrir auglýsingar Landsbankans, í samkeppni Art Directors Club Europe (ADC*E). Gullverðlaunin eru þau fyrstu sem íslenskur hönnuður hlýtur í keppninni sem er sú stærsta og virtasta á sviði grafískrar hönnunar og auglýsingagerðar í Evrópu.
Í frétt Hönnunarmiðstöðvar Íslands segir að myndskreytingar Sigga Eggertssonar hafi hlotið gullverðlaun í flokknum „myndskreytingar og ljósmyndun". Verkin hlutu einnig heiðursverðlaun í samkeppni Félags íslenskra teiknara sem veitt voru á HönnunarMars og sýnd í Hafnarborg, en keppnin var haldin í ellefta sinni og hefur fest sig í sessi á Íslandi.
Verðlaun Art Directors Club Europe (ADC*E) voru nú veitt í 21. sinn og eru veitt árlega og eru um leið eini vettvangurinn þar sem öllu því besta í grafískri hönnun og auglýsingagerð í Evrópu eru gerð skil á einum stað og er keppnin dæmd af um 50 fagaðilum alls staðar að úr Evrópu.
Félag íslenskra teiknara er aðili að ADC*E og heldur utan um íslenska þátttöku í keppninni, auk þess að standa fyrir FÍT keppninni. ADC*E eru samtök félaga evrópskra hönnuða og auglýsingagerðarfólks og vinningsverk taka þátt í alþjóðlegri samkeppni, The Cup, þar sem það besta í grafískri hönnun og auglýsingagerð í heiminum er verðlaunað ár hvert.
