12. júní 2012 13:34
Hlutafjárútboð í Regin hf. 18. og 19. júní 2012
Áskriftarvefur
Hlutafjárútboð í Regin fer fram dagana 18. og 19. júní 2012. Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf. mun bjóða til sölu 975.000.000 áður útgefna hluti í Regin, sem samsvarar 75% af heildarhlutafé í Regin. Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama verði sem liggja mun á verðbilinu 8,1-11,9 krónur á hvern hlut í Regin. Söluandvirði útboðsins getur numið á bilinu 7,9-11,6 milljarðar króna. Markaðsvirði alls hlutafjár í Regin miðað við fyrrgreint verðbil er á bilinu 10,5-15,5 milljarðar króna.
Sótt hefur verið um töku allra hlutabréfa í Regin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin). Seljandi mun falla frá útboðinu ef eftirspurn verður ekki nægjanleg til þess að Reginn uppfylli skráningarskilyrði Aðalmarkaðar Kauphallarinnar um dreifingu hlutafjár eða ef ekki næst að selja yfir 50% af heildarhlutafé í Regin í útboðinu. Seljandi hefur ákveðið að halda eftir 25% eignarhlut í Regin eftir útboðið og hefur skuldbundið sig til þess að selja þann eignarhlut ekki í 10 mánuði eftir töku hlutabréfa í Regin til viðskipta í Kauphöllinni.
Útboðið er markaðssett á Íslandi. Skilyrði fyrir þátttöku í útboðinu eru að þátttakendur hafi íslenska kennitölu og séu fjárráða. Ein áskrift er heimil fyrir hverja kennitölu í útboðinu. Þátttaka í útboðinu er skuldbindandi fyrir fjárfesta.
Útboðið er tvískipt og skiptist í tilboðsbók og áskriftarhluta.
1. Tilboðsbók – áskriftir að lágmarki 50 milljónir króna að kaupverði
Í tilboðsbók eru til sölu 633.750.000 hlutir eða sem nemur 48,75% af heildarhlutafé í Regin. Í tilboðsbók skila fjárfestar áskrift sinni til Fyrirtækjaráðgjafar eða Markaðsviðskipta Landsbankans á sérstöku áskriftareyðublaði sem nálgast má hjá fyrrgreindum aðilum. Áskriftir skulu vera á verðbilinu 8,1-11,9 krónur á hlut í Regin og skila þarf áskriftum fyrir klukkan 16:00 þann 19. júní 2012.
2. Áskriftahluti – áskriftir á bilinu 100.000-49.999.999 krónur að kaupverði
Í áskriftarhluta útboðsins eru til sölu 341.250.000 hlutir eða sem nemur 26,25% af heildarhlutafé í Regin. Fjárfestar skrá áskriftir sínar á áskriftarvef Landsbankans, sem aðgengilegur verður á vefsíðu Landsbankans og verður opinn frá klukkan 10:00 þann 18. júní 2012 til klukkan 16:00 þann 19. júní 2012. Til að skrá áskriftir sínar verða fjárfestar að hafa aðgang að netbanka, sem getur verið hvaða íslenski viðskiptabanki sem er.
Fjárfestar skrá kennitölu sína og lykilorð sem þeir panta á áskriftarvefnum og fá sent sem rafrænt skjal í netbanka sinn. Fjárfestar geta skilyrt áskrift sína við það að endanlegt útboðsgengi fari ekki umfram ákveðið hámarksverð á hlut. Ef fjárfestir tilgreinir ekkert hámarksverð í áskrift sinni skoðast áskriftin sem gerð á útboðsgengi.
Reginn hefur birt lýsingu sem dagsett er 11. júní 2012. Fjárfestar eru hvattir til þess að kynna sér allar upplýsingar sem þar er að finna áður en þeir taka ákvörðun um fjárfestingu í hlutabréfum í Regin. Lýsinguna, sem og aðrar upplýsingar sem birtar hafa verið um útboðið má nálgast hér að neðan og á vefsíðu Regins, www.reginn.is. Útprentuð eintök má nálgast í höfuðstöðvum Regins í Hagasmára 1 í Kópavogi.
Ráðgjafar Landsbankans veita upplýsingar um áskriftarhluta útboðsins í síma 410 4040, tölvupóstur: fjarmalaradgjof@landsbankinn.is, alla daga frá kl. 9-17, og frá klukkan 9-20 meðan á útboðinu stendur.
Skjöl
Lýsing Regins hf. dagsett 11. júní 2012
Kynning fyrir áhugasama fjárfesta (uppfært 12. júní 2012)
Verðmat Virðingar á Regin
Tengdar fréttir