Fréttir

11. júní 2012 17:58

Birting lýsingar Regins hf.

Í tengslum við hlutafjárútboð í Regin hf. og umsókn um töku allra hlutabréfa í Regin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphöllin), hefur Reginn birt lýsingu sem dagsett er 11. júní 2012. Lýsinguna má nálgast hér að neðan og á vefsíðu Regins, www.reginn.is næstu 12 mánuði og útprentuð eintök má nálgast í höfuðstöðvum Regins í Hagasmára 1 í Kópavogi. Áður en fjárfestar taka ákvörðun um fjárfestingu í hlutabréfum í Regin eru þeir hvattir til þess að kynna sér allar upplýsingar sem lýsingin hefur að geyma og skilmála útboðsins sem þar koma fram.

Skjöl

Lýsing Regins hf. dagsett 11. júní 2012

Kynning fyrir áhugasama fjárfesta (uppfært 12. júní 2012)

Verðmat Virðingar á Regin

Tengdar fréttir