Fréttir

31. maí 2012 12:56

Vegvísir: Hóflegur hagvöxtur framundan en há verðbólga festir sig í sessi

Vegvísirinn er að þessu sinni helgaður uppfærðri þjóðhags- og verðbólguspá Hagfræðideildar, en deildin birti síðast ítarlega þjóðhagsspá í lok nóvember á síðasta ári.

Hóflegur en stöðugur hagvöxtur framundan

Hagvaxtarhorfurnar næstu 3 árin eru í stórum dráttum svipaðar og reiknað var með í þjóðhagsspá Hagfræðideildar í nóvember. Gert er ráð fyrir heldur meiri hagvexti á þessu ári, eða um 3%, sem einkum skýrist af áframhaldandi krafti í vexti einkaneyslu og fjármunamyndunar. Á næsta ári er útlit fyrir að hagvöxtur hægist niður í 2% en aukist á ný í 3% 2014.

Spáð er hárri verðbólgu allan spátímann

Meginbreytingin frá nóvemberspánni er að verðbólguhorfurnar hafa versnað umtalsvert frá því í nóvember. Háar verðbólguvæntingar, veik viðbrögð peningastefnunefndar og útlit fyrir áframhaldandi veikingu krónunnar á tímabilinu gerir það að verkum að reiknað er með því að verðbólgan verði vel yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands á öllu spátímabilinu.

Vegvísir - maí 2012