Fréttir

25. maí 2012 09:58

Landsbankinn hyggst selja 10,93% eignarhlut í Hampiðjunni hf.

Landsbankinn hf. hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni hf. eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu.

Markaðsviðskipti Landsbankans munu annast sölu hlutanna í opnu útboði byggðu á undanþáguheimild frá útgáfu lýsingar í samræmi við lög um verðbréfaviðskipti.

Lágmarkshlutur hvers tilboðs skal vera 10.000.000 hlutir að nafnverði og lágmarksgengi miðast við 8,00 krónur á hlut.

Útboðsskilmála og önnur nauðsynleg gögn má nálgast hjá Markaðsviðskiptum Landsbankans en tekið verður við tilboðum frá og með föstudeginum 25. maí 2012 kl. 10:00. Tilboðsfrestur rennur út mánudaginn 4. júní 2012 kl. 16:00. Niðurstöður útboðsins verða birtar í Kauphöll að útboði loknu.

Útboðsskilmálar

Tilboðsblað