30. apríl 2012 10:02
Í vikubyrjun: mánudagurinn 30. apríl
Helstu hagtölur í síðustu viku
Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,78% á milli mars- og aprílmælinga Hagstofunnar. Þetta var töluvert meiri hækkun en búist hafði verið við, en opinberar spár lágu á bilinu 0,5% og 0,7%. Tólf mánaða breyting vísitölunnar stóð í stað í 6,4% og er nú búin að vera yfir 6% í fjóra mánuði samfellt. Nánar verður fjallað um þetta í Vegvísi sem kemur út seinna í dag.
Helstu hagtölur þessa viku
Í dag birtir Hagstofan uppfærðar tölur um vöruskipti við útlönd frá janúar til mars á þessu ári. Á föstudag (4. maí) birtast bráðabirgðatölur um vöruskipti í apríl og upplýsingar um gistinætur á hótelum. Sama dag birtir Seðlabankinn upplýsingar um gjaldeyrismarkað, krónumarkað og raungengi.
Hagtölur
Markaðsupplýsingar
Mynd vikunnar
Á mynd vikunnar sjáum við þróun kjötsölu á landinu, en kjötneysla er nokkuð góð vísbending um þróun einkaneyslunnar. Sala náði hámarki í október 2008 í 2.641 tonnum, en í október 2010 nam salan 2.404 tonnum sem er 9% samdráttur. Kjötneysla er nú á svipuðum slóðum og í apríl 2007.
