25. apríl 2012 10:55
Umræðan: Litlar vísbendingar um verðbólu á fasteignamarkaði
Að svo stöddu er ekki hægt að greina neinar vísbendingar þess efnis að verðbóla sé að myndast á íslenskum fasteignamarkaði samkvæmt úttekt Hagfræðideildar Landsbankans sem birt er á Umræðuvef bankans.
Fullyrðingar um að slíkt sé nú í uppsiglingu hafa verið áberandi í opinberri umræðu að undanförnu en engin merki um eignabólu eru sjáanleg í opinberum hagtölum.
Gjaldeyrishöftin geta þó reynst Íslendingum dýrkeypt að þessu leytinu að mati Hagfræðideildar, því þau geta haft brenglandi áhrif á eðlilega verðmyndun á innlendum eignamarkaði og stuðlað að bólumyndun.
Greinin í heild á Umræðunni