23. apríl 2012 14:24
Hagsjá: Hagfræðideild spáir 0,5% hækkun vísitölu neysluverðs
Hagstofan birtir aprílmælinguna á vísitölu neysluverðs (VNV) föstudaginn 27. apríl næstkomandi. Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitalan hækki um 0,5% milli mánaða. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan lækka úr 6,4% í 6,1%.
Verðbólgan komin niður í 5,6% í júlí
Hagfræðideildin spáir því einnig að verðbólgan hjaðni á komandi mánuðum. Gert er ráð fyrir að vísitala neysluverðs hækki um 0,5% í maí, 0,4% í júní og 0,1% í júlí. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan verða komin niður í 5,6% í júlí 2012.
Hagsjá 23. apríl 2012