23. mars 2012 08:51
Landsbankinn fær fimm verðlaun hjá FÍT
Markaðsefni frá Landsbankanum hlaut fimm verðlaun á verðlaunahátíð FÍT – félags íslenskra teiknara, þar á meðal aðalverðlaun keppninnar. Verðlaunin voru veitt fyrir endurmörkun á Landsbankanum, myndskreytingar í auglýsingum og framsetningu á grafísku efni í markaðsefni bankans.
Landsbankinn hlaut verðlaun í eftirtöldum flokkum:
- Mörkun – heildarútlit Landsbankans árið 2011
- Upplýsingahönnun – grafísk einkenni í markaðs- og upplýsingaefni
- Myndskreytingar – Hreyfiafl (fyrirtækjaherferð)
- Auglýsingaherferð, viðurkenning – Hreyfiafl (fyrirtækjaherferð)
- Aðalverðlaun FÍT 2012 – Hreyfiafl (fyrirtækjaherferð)
Markaðsefnið er unnið í náinni samvinnu markaðsdeildar og starfsmanna hjá Jónsson & Le’macks, auglýsingastofu Landsbankans. Grafíski hönnuðurinn Sigurður Egggertsson vann myndskreytingar fyrir fyrirtækjaherferðina.
Félag íslenskra teiknara, fagfélag grafískra hönnuða og myndskreyta, hefur staðið að FÍT-verðlaununum í rúmlega tíu ár. Tilgangurinn með verðlaununum er að vekja athygli á grafískri hönnun og benda á mikilvægt framlag grafískra hönnuða í auglýsingum og markaðsstarfi á Íslandi. Verðlaunin í ár voru veitt í 21 flokki auk þess sem ein aðalverðlaun voru veitt.

