27. febrúar 2012 10:55
Í vikubyrjun: mánudagurinn 27. febrúar
Helstu hagtölur í síðustu viku
Föstudaginn 24. febrúar birti Hagstofa Íslands febrúar mælingu vísitölu neysluverðs (VNV) og hækkaði vísitalan um 1,01% milli mánaða. Opinberar spár höfðu gert ráð fyrir að VNV myndi hækka um 0,9% til 1,1% milli mánaða (Hagfræðideild spáði 1% hækkun). Hækkunin nú var því í takt við væntingar greiningaaðila. Tólf mánaða verðbólgan mældist 6,3% í febrúar samanborið við 6,5% í janúar og hjaðnaði ársverðbólgan því milli mánaða. Nánar verður fjallað um verðbólguþróunina í Vegvísi sem kemur út seinna í mánuðinum.
Helstu hagtölur þessa viku
Á miðvikudaginn (29. febrúar) birtir Hagstofan upplýsingar um vöruskiptajöfnuð í janúar og bráðabirgðatölur um þjónustuviðskipti við útlönd á 4. ársfjórðungi 2011. Á föstudag (2. mars) birtir Seðlabankinn upplýsingar um greiðslujöfnuð og erlenda stöðu þjóðarbúsins á 4. ársfjórðungi 2011.
Markaðsupplýsingar 27. febrúar 2012
Hagtölur 27. febrúar 2012