24. febrúar 2012 16:11
Landsbankinn vann Lífshlaupið
Starfsfólk Landsbankans vann sigur í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins í flokki fyrirtækja með fleiri en 800 starfsmenn. Arion banki varð í öðru sæti, Íslandsbanki í því þriðja en þar á eftir komu Landspítalinn og N1. Alls voru 645 starfsmenn Landsbankans með í Lífshlaupinu sem er 48% þátttaka.
Fimm efstu í flokki fyrirtækja með 800 starfsmenn +
| Fyrirtæki |
Fjöldi daga |
Mínútur |
| Landsbankinn |
6,97 |
495,93 |
| Arion banki |
3,59 |
251,69 |
| Íslandsbanki |
3,28 |
216,32 |
| Landspítali |
1,42 |
97,50 |
| N1 |
0,91 |
68,52 |
Fróðlegar tölur um Lífshlaupið
Þátttakendum í Lífshlaupinu fjölgaði um 27% á milli ára og var 20.878 manns í ár en 16.499 í fyrra. Aukningin var mest í hvatningarleik grunnskólanna þar sem nemendum fjölgaði um 75% en í vinnustaðakeppninni jókst þátttakan um 7,3%.
Í hvatningarleik grunnskólanna var skráður 41 (40) skóli, 467 (340) bekkir með 8.237 (4705) nemendum til leiks. Í vinnustaðakeppninni voru 455 (432) vinnustaðir skráðir með 1539 (1432) lið og 11.702 (10.910) liðsmenn. Í einstaklingskeppninni eru 939 (834) einstaklingar að skrá á sig hreyfingu. Tölurnar innan sviga eru frá 2011.
Sú tegund hreyfingar sem var vinsælust meðal þátttakenda í Lífshlaupinu var ganga með 25,63%, líkamsrækt er með 11,18%, sund með 3,98%, knattspyrna með 3,84% og skíði með 3,52%.
Um Lífshlaupið
Lífshlaupið hófst 1. febrúar og stendur til 21. febrúar. Meginmarkmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til að hreyfa sig og huga að sinni daglegu hreyfingu í frítíma, heimilisstörfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Hugmyndin er að hvetja fólk til dáða og að það skrái alla hreyfingu á vefinn lifshlaupid.is svo framarlega að hún falli undir skilgreiningu Lýðheilsustöðvar um hreyfingu.
Samstarfsaðilar Íþrótta- og Ólympíusambandsins eru: velferðarráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, embætti landlæknis, Skýrr, Rás 2 og Ávaxtabíllinn.
Nánar um öll úrslit Lífshlaupsins

Fulltrúar íþróttanefndar FSLÍ Sigríður Ragna Jóhannsdóttir, Heiða Jóhannsdóttir og Sigríður Jóhannsdóttir tóku við verðlaunum í Lífshlaupinu fyrir hönd Landsbankans. Með þeim á myndinni eru Gunnlaugur Júlíusson og Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir nefndarmenn almenningsíþróttasviðs ÍSÍ.