Fréttir

22. febrúar 2012 10:15

Landsbankinn veitir afreksstyrki í fyrsta sinn

Landsbankinn hefur ákveðið að veita í fyrsta sinn afreksstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans ætluðum afreksfólki sem stundar einstaklings- eða paraíþrótt. Einnig er fyrirhugað að styrkja efnilegt ungt íþróttafólk með afreksstyrkjum framtíðarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 2. mars.

Veittir verða 6-10 afreksstyrkir að upphæð allt að 500 þúsund krónur hver og 2-3 styrkir til afreksfólks framtíðarinnar að upphæð allt að 200 þúsund krónur hver.

Forsendur fyrir styrkveitingu er að einstaklingur hafi náð framúrskarandi árangri á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi í grein sinni, t.a.m. hefur náð lágmarki til að keppa á Norðurlandamóti, Evrópumóti, heimsmeistaramóti eða Ólympíuleikum. Umsækjendur skulu jafnframt vera til fyrirmyndir annarra íþróttamanna og hafa skýra framtíðarsýn um íþróttaiðkun sína og skýrar hugmyndir um nýtingu styrkfjárins. Umsækjendur um afreksstyrki framtíðarinnar skulu vera yngri en 20 ára og hafa náð framúrskarandi árangri í sínum aldursflokki.

Fimm tegundir styrkja úr Samfélagssjóði

Í ár verða fimm tegundir styrkja veittir úr Samfélagssjóði Landsbankans: Afreksstyrkir, námsstyrkir, nýsköpunarstyrkir, samfélagsstyrkir og umhverfisstyrkir.

Úthlutunarfrestir allra styrkveitinga á vegum Samfélagssjóðs Landsbankans árið 2012 liggja nú fyrir og hafa verið birtir á vef bankans.

Ákveðið hefur verið að veita samfélagsstyrki tvívegis á árinu. Það er gert til að koma til móts við þann fjölda einstaklinga og hópa sem sækja um styrki á ári hverju.

Beinn stuðningur við samfélagið er liður í stefnu bankans um samfélagslega ábyrgð. Stuðningur úr samfélagssjóði kemur til viðbótar við fjölbreytt samstarfsverkefni bankans á sviði mannúðarmála, menningar, menntunar, nýsköpunar og íþrótta um land allt.