Fréttir

21. febrúar 2012 14:07

Vel sóttir fundir Landsbankans

 Landsbankinn hóf fundaröð sína undir yfirskriftinni „Landsbankinn heldur áfram" á Sauðárkróki þann 14. febrúar síðastliðinn, ennfremur hafa verið haldnir fundir í Reykjanesbæ og í Kópavogi. Á þriðja hundrað manns hafa sótt fundina. Næsti fundur verður haldinn í Snæfellsbæ í kvöld kl. 20 í Félagsheimilinu á Klifi, Ólafsvík. Fyrirhugað er að halda samtals átta fundi víðs vegar um landið.

Þessi fundaröð bankans er liður í þeirri stefnu Landsbankans að vera hreyfiafl í samfélaginu og ýta undir endurreisn atvinnulífs og fjölgun starfa í landinu, jafnt í þéttbýli og dreifbýli. Ennfremur vilja stjórnendur bankans eiga opinskáar samræður við landsmenn um hvernig bankinn geti bætt þjónustu sína.

Á fundunum er sjónum einkum beint að fjárfestingu, nýsköpun og uppbyggingu atvinnulífsins. Bankastjóri Landsbankans, Steinþór Pálsson, fjallar um stöðu bankans og stefnu hans, nýsköpunarþjónusta bankans er kynnt og fulltrúar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og stjórnendur ungra spennandi fyrirtækja úr mörgum atvinnugreinum halda erindi á fundunum.

Meðal þeirra fyrirtækja sem taka þátt í fundaröð bankans eru Valorka, Caoz, Gagnavarslan, Ferðaþjónustan á Mjóeyri, Kerecis, Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður, Saltverk, Norðursigling, Sjávarleður, Andrea Maack Parfums, Villimey, Atlantik og Grindavík Experience.

Á fundinum í Snæfellsbæ í kvöld mun Aðalbjörg Þorsteinsdóttir stofnandi Villimeyjar kynna starfsemina, en Villimey framleiðir náttúrleg og lífrænt ræktuð smyrsl sem seld eru víða um heim.

Á Ísafirði þann 22. febrúar verða fulltrúar Andreu Maack Parfums og Norðursigling með í för og á fundinum á Selfossi þann 28. febrúar munu fulltrúar Saltverks og Sjávarleðurs ræða um helstu verkefnin sem við þeim hafa blasað í uppbyggingu fyrirtækja sinna. Á Akureyri þann 29. febrúar taka þátt Gagnavarslan og kvikmyndafyrirtækið Caoz.

Á síðasta ári efndi bankinn til opinna funda á 9 stöðum um land allt fyrir ári og þá sóttu um 800 manns. Jafnframt átti bankinn fundi með sveitarstjórnum í 25 sveitarfélögum, atvinnuþróunarfélögum og fleirum til að leita uppi góðar hugmyndir sem bankinn gæti lagt lið.

Opinn fundur Landsbankans 2012

Frá fundinum í Stapa, Reykjanesbæ, 16. febrúar.



Til baka