20. febrúar 2012 10:15
Í vikubyrjun: mánudagurinn 20. febrúar
Helstu hagtölur í síðustu viku
Í vikunni keypti Seðlabankinn 141,3 milljónir evra í tveimur gjaldeyrisútboðum. Útboðin voru liður í losun gjaldeyrishaftanna. Bankinn borgaði 240 kr. fyrir hverja evru sem er 78,6 kr. hærra en opinbert viðmiðunarverð. Sjá nánar á vef Seðlabankans.
Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar sem birtar voru í vikunni var atvinnuleysi hér á landi 7,2% í janúar og lækkaði það um 0,1% frá fyrra mánuði. Þessi þróun er öfug við það tíðkast hefur á þessum árstíma þar sem atvinnuleysi hefur jafnan aukist tímabundið milli desember og janúar. Fjöldi atvinnulausra á skrá fækkaði um 308 milli mánaða en til samanburðar fjölgaði þeim um rúmlega 900 manns í janúar 2010 og um rúmlega 700 manns í janúar 2011. Sjá nánar í Hagsjá frá 17. febrúar.
Helstu hagtölur þessa viku
Seinna í dag birtir Hagstofan skýrslu um vinnumarkað 2011, á miðvikudag launavísitölu fyrir janúar og á föstudag vísitölu neysluverðs í febrúar. Seðlabankinn birtir á föstudag Hagvísa og upplýsingar um bankakerfið, verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóði.