Fréttir

17. febrúar 2012 13:36

Tvær tilnefningar til Íslensku auglýsingaverðlaunanna

Landsbankinn fékk tvær tilnefningar til Íslensku auglýsingaverðlaunanna sem verða veitt á vegum ÍMARK, félags íslensks markaðsfólks, föstudaginn 24. febrúar nk.

Nýtt heildarútlit og markaðsefni Landsbankans fékk tilnefningu í nýjum verðlaunaflokki sem kallast „Ásýnd fyrirtækis eða vörumerki". Nýtt heildarútlit var kynnt snemma árs 2011 og var hannað og þróað af auglýsingastofunni Jónsson & Lemack‘s í náinni samvinnu við markaðsdeild Landsbankans.

Stór þáttur í nýrri ásýnd Landsbankans eru sjónvarpsauglýsingar bankans en saman mynda þær eina samfellda heild sem nær yfir allar helstu vörur og þjónustu bankans. Ein þeirra - auglýsing um Námuna - fékk tilnefningu í flokki kvikmyndaðra auglýsinga. Líkt og í öðrum auglýsingunum er viðskiptavinur í forgrunni og segir sögu sína. Í þessu tilviki er það hann Garðar sem ásamt félögum sínum ætlar að nota jarðvarma til að framleiða salt á Reykjanesi á Vestfjörðum.

Náman - Garðar

Það er auglýsingastofan Jónsson & Lemack‘s sem gerði allar sjónvarpsauglýsingarnar fyrir bankann á síðasta ári í samvinnu við markaðsdeild.

Allar sjónvarpsauglýsingar Landsbankans

Um Íslensku auglýsingaverðlaunin

Íslensku auglýsingaverðlaunin eru veitt í 16 flokkum. ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks, veitir verðlaunin í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa (SÍA).

Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin, er opinn öllum sem stunda gerð eða dreifingu auglýsinga á Íslandi. Tilgangur keppninnar er að vekja athygli á vel gerðum auglýsingum og auglýsingaefni og veita aðstandendum þess verðskuldaða athygli.

Allar tilnefningar Lúðursins



Til baka