07. febrúar 2012 15:11
Morgunverðarfundur Festu og SA: Hvað er samfélagsábyrgð fyrirtækja?
Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja og Samtök atvinnulífsins (SA) halda morgunverðarfund undir yfirskriftinni „Hvað er samfélagsábyrgð fyrirtækja?“, þann 15. febrúar næstkomandi á Icelandair Hótel Reykjavík Natura (þingsal 3), kl. 8.30–10.00.
Á fundinum munu sérfræðingar og stjórnendur fyrirtækja skýra frá því hvað samfélagsábyrgð fyrirtækja stendur fyrir. Regína Ásvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, stýrir fundi.
Dagskrá:
08.15 – 08.30 Skráning og morgunverðarhlaðborð.
08.30 – 09.00 Samfélagsábyrgð fyrirtækja. Hræsni eða heilindi? Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands.
09.00 – 09.15 Síminn og samfélagsábyrgð. Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans og stjórnarformaður Festu.
09.15 – 09.30 Samfélagsábyrgð Landsvirkjunar og áskoranir við innleiðingu. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
09.30 – 09.45 Siðræn neysla – hin hliðin á sama peningi. Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri Neytendablaðsins.
09.45 – 10.00 Pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara.
Þátttökugjald er 2.500 kr. og er morgunverður innifalinn. Aðildarfélagar og háskólanemar greiða 1.500 kr. Skráning fer fram á festa@ru.is.
Auglýsing um ráðstefnuna
Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja
Festa, miðstöð um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, var formlega stofnuð í október árið 2011 af Landsbankanum, Össuri, Íslandsbanka, Landsvirkjun, Rio Tinto Alcan, og Símanum. Á morgunverðarfundinum þann 15. febrúar verður vefur Festu opnaður formlega.
Meginmarkmið Festu er að byggja upp tengslanet og þekkingu um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Festa er með starfsstöð í Háskólanum í Reykjavík og er með samning við háskólann um samstarf á sviði fræðslu og rannsókna um samfélagsábyrgð. Ennfremur er Festa í formlegu samstarfi við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.
Samfélagsábyrgð fyrirtækja (Corporate Social Responsibility, CSR) hefur með tengsl reksturs og starfsemi fyrirtækja við efnahags- og umhverfismál, siðferði, samfélagsmál og lagalega ábyrgð þeirra. Þau fyrirtæki sem fylgja stefnu um samfélagslega ábyrgð líta á hlutverk sitt í samfélaginu með tilliti til þessara þátta með það að leiðarljósi að starfsemi og rekstur þeirra auki verðmætasköpun í samfélaginu og skaði ekki umhverfið sem þau starfa í.
Til baka