06. febrúar 2012 10:38
Í vikubyrjun, mánudagurinn 6. febrúar
Helstu hagtölur í síðustu viku
Í vikunni birti Hagstofa Íslands tölur um vöruskiptin í janúar 2012. Vöruskiptin voru hagstæð um 12 ma.kr samkvæmt bráðabirgðatölum. Jafnframt var birt leiðrétting á bráðabirgðatölum um vöruskiptin 2011, en samkvæmt þeim var verðmæti útflutnings í desember 7,6 ma.kr. minni en áður birtar tölur bentu til. Heildarafgangur af vöruskiptum árið 2011 var því 96,9 ma.kr. Hagstofan birti einnig tölur um gistinætur erlendra gesta í desember, en þeim fjölgaði um 37% miðað við sama tíma í fyrra.
Hagfræðideild Landsbankans gaf út stýrivaxtaspá síðastliðinn föstudag, spáð er hækkun stýrivaxta um 0,25 prósentustig vaxtaákvörðunardaginn miðvikudaginn 8. febrúar. Aðrar opinberar spár hljóða uppá óbreytta vexti eða 0,25% hækkun. Vegvísir, mánaðarrit Hagfræðideildar Landsbankans, kom út í nýliðinni viku.
Vegvísir janúar 2012
Helstu hagtölur þessa viku
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands mun birta stýrivaxtaákvörðun sína miðvikudaginn 8. febrúar ásamt uppfærðri þjóðhagsspá. Seðlabankinn birtir útreikninga á raungenginu í janúar í dag auk upplýsinga um krónumarkaðinn og lífeyrissjóðina. Á þriðjudag verður birt yfirlit yfir efnahag Seðlabankans og á miðvikudaginn yfirlit yfir erlenda stöðu Seðlabankans.
Til baka