Fréttir

30. janúar 2012 11:21

Vegvísir: Verðbólgudraugurinn minnir á sig í upphafi árs

Verðbólgan tók stökk í janúar þrátt fyrir hefðbundin útsöluáhrif í mánuðinum. Hækkunin er einkum vegna grunnáhrifa sem stafa af breytingum sem gerðar voru á vísitölu neysluverðs í janúar í fyrra.

Innlend kortanotkun á 4. ársfjórðungi 2011 bendir til þess að áframhald hafi orðið á vexti einkaneyslunnar í lok ársins.

Atvinnuleysi lækkaði milli ára en í lok síðasta árs var skráð atvinnuleysi 7,3% samanborið við 8,0% í lok árs 2010.

Fasteignaverð hækkaði á liðnu ári um 9,1% að nafnvirði og 3,2% að raunvirði á höfuðborgarsvæðinu. Verðþróunin var svipuð á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni í heild á liðnu ári en verðið lækkaði á landsbyggðinni í janúarmánuði en hækkaði á höfuðborgarsvæðinu.

Afgangur var á vöruviðskiptum við útlönd þriðja árið í röð á nýliðnu ári en heldur dró úr afganginum miðað við fyrra ár vegna aukningar innflutnings umfram útflutning.

Áhrif gjaldeyrishafta verða sífellt meira áberandi á skuldabréfamarkaði og nú er ávöxtunarkrafa á stysta verðtryggða skuldabréfaflokknum komin niður í -7,7%.

Vegvísir - janúar 2012



Til baka