25. janúar 2012 09:18
Á stofnfjárhafafundi Sparisjóðs Svarfdæla sem haldinn var 24. janúar var samþykkt að rekstur Sparisjóðs Svarfdæla yrði seldur Landsbankanum hf. Tilboð Landsbankans í rekstur og eignir sparisjóðsins var samþykkt af stjórn sjóðsins skömmu fyrir síðastliðin áramót með fyrirvara um endanlegt samþykki á stofnfjárhafafundi.
Samkvæmt tilboðinu yfirtekur Landsbankinn skuldbindingar vegna innlána og víkjandi lána, sem samtals nema um 3.200 milljónum króna og greiðir að auki 165 milljónir. Enn fremur yfirtekur Landsbankinn allar rekstrarlegar skuldbindingar sparisjóðsins.
Endanleg sala er enn háð samþykki Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og Eftirlitsstofnunar EFTA en að fengnu samþykki þessara aðila, mun Landsbankinn yfirtaka rekstur Sparisjóðs Svarfdæla.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré