23. janúar 2012 11:06
Í vikubyrjun: mánudagurinn 23. janúar
Helstu hagtölur í síðustu viku
Hagstofan birti í vikunni niðurstöður úr ársfjórðungslegri vinnumarkaðsrannsókn sinni. Á fjórða ársfjórðungi voru 175.500 manns á vinnumarkaði, eða 78,4% atvinnuþátttaka. Frá fjórða ársfjórðungi 2010 hefur vinnuaflið dregist saman um 3.100 manns, eða 1,7%. Samkvæmt rannsókninni var atvinnuleysi á ársfjórðungnum 6% af vinnuaflinu. Niðurstöður úr rannsókninni má nálgast á vef Hagstofunnar.
Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu í desember hækkaði um 0,9% á milli mánaða samkvæmt tölum sem Þjóðskrá birti í vikunni. Að nafnverði hefur vísitalan hækkað um 9,9% á árinu. Að raunvirði hækkaði vísitalan um 5,0% sem er viðsnúningur frá 2010 þegar hún lækkaði um 3,2% og 2009 þegar hún lækkaði um 20,9%. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Þjóðskrár Íslands.
Helstu hagtölur þessa viku
Á miðvikudaginn birtir Hagstofan vísitölu neysluverðs í desember. Hagfræðideild Landsbankans spáir að vísitalan hækki um 0,05% í janúar. Gangi spáin eftir verður 12 mánaða verðbólga 6,3%.
Markaðsupplýsingar 23. janúar 2012
Hagtölur 23. janúar 2012