Fréttir

15. desember 2010 15:15

Skrifað undir samkomulag um úrræði fyrir smá og meðalstór fyrirtæki

Skrifað var undir samkomulag um úrræði fyrir smá og meðalstór fyrirtæki í skuldavanda í Rúgbrauðsgerðinni í dag. Að því koma stjórnvöld, Samtök atvinnulífsins og fjármálafyrirtæki auk annarra. Samkomulagið felur í sér metnaðarfulla áætlun til að koma til móts við þennan hóp fyrirtækja sem eru um 90% allra fyrirtækja í landinu. Samkomulagið er ein af nauðsynlegum forsendum nýrrar fjárfestingar í íslensku atvinnulífi að mati þeirra sem að því koma.


Fyrirtækin á beinu brautina

samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja


Beina brautinVíðtækt samkomulag hefur náðst um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands. Skrifað var undir samkomulagið síðdegis í dag í Rúgbrauðsgerðinni.

Að mati þeirra sem undir samkomulagið rita, er það ein af nauðsynlegum forsendum nýrrar  fjárfestingar í íslensku hagkerfi sem aftur leiðir af sér hagvöxt og störf.

Samkomulagið felur í sér að úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði hraðað verulega. Stefnt er að því að fyrir 1. júní 2011 hafi fjármálafyrirtæki lokið skoðun á fjárhagsstöðu þessara fyrirtækja og gert lífvænlegum fyrirtækjum sem eru í fjárhagsvanda tilboð um úrvinnslu skulda þeirra.

Miðað er við að heildarskuldsetning fyrirtækis að lokinni úrvinnslu fari ekki fram úr endurmetnu eigna- eða rekstrarvirði þess, hvoru sem er hærra, að viðbættu virði annarra trygginga og ábyrgða fyrir skuldum viðkomandi fyrirtækis.

Samkomulaginu verður fylgt eftir með mánaðarlegum skýrslum um framgang mála og úrbótum á úrvinnslunni, komi til hnökra eða tafa.

Lítil og meðalstór fyrirtæki eru stærsti vinnuveitandi landsins. Ríflega 90% allra íslenskra fyrirtækja eru lítil eða meðalstór og má ætla að fjöldi þeirra sé á þriðja tug þúsunda. Þessi fyrirtæki standa undir drjúgum hluta verðmæta- og atvinnusköpunar í landinu.

Samkomulagið verður kynnt stjórnendum lítilla og meðalstórra fyrirtækja á opnum fundi á Grand hótel Reykjavík föstudaginn 17. desember kl. 8.30.

Helstu atriði samkomulagsins


  • Samkomulagið er undirritað með fyrirvara um lögfestingu annars vegar breytinga á skattalögum og hins vegar breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu.
  • Lítil og meðalstór fyrirtæki, með skuldir allt að 1.000 m.kr. geta fengið skuldir sínar lækkaðar niður að endurmetnu eigna- eða rekstrarvirði, hvoru sem er hærra að viðbættu virði annarra trygginga á skuldum fyrirtækis.
  • Biðlán getur komið til ef eigendur hafa ekki burði til þess að leggja fyrirtækinu til eigin fé, að hámarki 30% af heildarvirði fyrirtækis. Vegna sérstakra aðstæðna skal fjármálafyrirtæki þó heimilt að víkja frá þessum mörkum. Biðlánið er til þriggja ára, án greiðslna á þeim tíma og ber lága vexti. Að loknum þeim þriggja ára aðlögunartíma mun fjárhagsstaða fyrirtækisins skoðuð á ný. Sé áfram þörf á biðláni skal það frá þeim tíma bera vexti sem samsvara eðlilegri ávöxtun á eigin fé.
  • Tillögugerð um fjárhagslega endurskipulagningu allra fyrirtækja sem eiga í hlut ljúki fyrir 1. júní 2011. Mánaðarleg markmið verða sett um fjölda afgreiðslna.
  • Sé eigandi, eða þriðji aðili, í ábyrgð fyrir skuldbindingu fyrirtækis þá verður fjárhæð slíkrar ábyrgðar endurmetin á grundvelli greiðslugetu og eignastöðu ábyrgðaraðila samhliða endurskipulagningu.
  • Öllum verður boðið að samþykkja skuldauppgjör og endurskipulagningu með fyrirvara um betri rétt samkvæmt niðurstöðu dómstóla, t.d. hvað varðar gengistryggð lán.
  • Ríkissjóður og opinberir aðilar endurskoða opinber gjöld og skattaskuldir með það fyrir augum að fresta greiðslum eða fella niður skuldir, sé það í hag allra hlutaðeigandi aðila.
  • Viðskiptaskuldir fyrirtækja verða almennt ekki færðar niður við endurskipulagningu, enda tengjast þær daglegum rekstri og viðskiptasamböndum fyrirtækisins.
  • Fjármálafyrirtæki og fyrirtæki í endurskipulagningu geta komið sér saman um að fá mat þriðja aðila á eigna- eða rekstrarvirði fyrirtækisins.
  • Sérstakri úrskurðarnefnd eða gerðardómi verði komið á fót til að fjalla um ágreining á milli kröfuhafa um niðurfærslu skulda fyrirtækja. Nefndin fái heimild til að kveða upp fullnustuúrskurði í málum.
  • Aðilar samkomulagsins funda mánaðarlega eða oftar til að meta framgang áætlunarinnar og endurbæta hana þyki þörf á. Fjármálafyrirtæki leggja fram mánaðarlegar skýrslur um framgang mála.
  • Stjórnvöld beita sér fyrir að opinberar lánastofnanir, t.d. Byggðastofnun, taki þátt í úrvinnslunni.


Til baka