29. janúar 2009 10:42
Eggert Á. Sverrisson ráðinn umboðsmaður viðskiptamanna Landsbankans
Eggert Á. Sverrisson hefur verið ráðinn í starf umboðsmanns viðskiptamanna Landsbankans.
Eggert útskrifaðist sem viðskiptafræðingur (cand. oecon) frá Háskóla Íslands árið 1973. Á árunum 1979-1991 starfaði Eggert hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, fyrst sem fulltrúi forstjóra Sambandsins (1979-1984), framkvæmdastjóri fjármáladeildar (1984-1986) og síðast sem framkvæmdastjóri skrifstofu Sambandsins í London (1987-1991). Eggert starfaði sem forstöðumaður fjárstýringar í Íslandsbanka hf. á árunum 1992-1997. Á árunum 1997-2007 starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá Vátryggingafélagi Íslands hf. en hefur frá 2008 rekið eigið ráðgjafafyrirtæki.
Eggert hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og félagasamtaka.