- Fjárfestatengsl
Umræðan: Ávinningur íslenskrar ferðaþjónustu af erlendri fjárfestingu
Þórður H. Hilmarsson, forstöðumaður fjárfestingasviðs Íslandsstofu, segir í grein sinni sem birtist á Umræðuvef Landsbankans að ávinningur íslenskrar ferðaþjónustu af erlendri fjárfestingu sé margvíslegur. Hann segir að alþjóðleg fyrirtæki og fjárfestar á sviði ferðaþjónustu geti innleitt ný viðmið í gæðamálum og þjálfun starfsfólks, aukið þekkingu og markaðstengsl í ferðaþjónustu hérlendis.
Hann segir einnig í greininni: "Sumar þeirra fjárfestinga í ferðaþjónustu sem þörf er á til að auka arðsemina verulega eru að öllum líkindum umfangsmiklar og erfitt getur verið að fá til þeirra innlent fjármagn. Hér er um að ræða fjárfestingu sem talin er í milljörðum og er meðal annars í hágæða hótelum, klösum með framboði gistingar, þjónustu og afþreyingar (e. resorts), heilsutengdri ferðaþjónustu og þemagörðum svo dæmi sé tekið."
Hægt er að lesa grein Þórðar í heild sinni á Umræðunni.
Til baka