Fréttir og útgáfuefni

- Efnahagsmál - Hagsjá

Hagsjá: Meiri þróttur í vinnumarkaðnum en hægt hefur á vexti einkaneyslunnar.

Verulega dró úr skráðu atvinnuleysi í júní en það mældist 4,8% samanborið við 6,7% á sama tíma í fyrra. Mun meiri þróttur virðist því vera í atvinnulífinu en spár gerðu ráð fyrir. Hagfræðideild Landsbankans býst við því að þær atvinnuleysistölur sem eiga eftir að koma í sumar verði í samræmi við seinustu tölur. Það er hins vegar meiri óvissa um hvað gerist í haust þegar sumarverkin í byggingariðnaði og ferðamannaiðnaði klárast. Þá kemur betur í ljós hvort vinnumarkaðurinn sé í raun að taka við sér hraðar en búist var við eða hvort það sé bara óvenju mikið að gerast þetta sumar.

Vísbendingar um einkaneysluna fyrri helming ársins benda til helmingi minni vaxtar en flestar opinberar þjóðhagsspár gera ráð fyrir. Því þarf veltan á seinni helmingi ársins að aukast verulega eigi spárnar að ganga eftir. Verði það ekki raunin er útlit fyrir að hagvöxturinn á þessu ári verði talsvert minni, að öðru óbreyttu, en spáð hefur verið. Á móti vegur að mun hraðar hefur dregið úr atvinnuleysi undanfarna tvo mánuði en reiknað var með. Ef sú þróun heldur áfram kann að reynast innistæða fyrir kröftugri vexti einkaneyslu á seinni helmingi ársins.

Hagsjá 17. júlí 2012



Til baka