Fréttir og útgáfuefni

- Fréttir og tilkynningar

Hlutur Landsbankans í Al álvinnslu hf. til sölu

Landsbankinn hf., býður til sölu 9,88% eignarhlut sinn í félaginu Alur álvinnsla hf. (Alur), sem er að nafnvirði 2.568.808 kr.

Alur er hlutafélag sem á og rekur endurvinnslu fyrir álgjall í Helguvík á Reykjanesi. Félagið var stofnað árið 1998 af nokkrum frumkvöðunum og hóf framleiðslu áls á árinu 2003 (Sjá nánar á www.alur.is). Félagið vinnur samkvæmt gildandi starfsleyfi frá 2011.

Alur endurvinnur allt álgjall sem fellur til við starfsemi Norðuráls. Á árinu 2011 voru unnin 2403 tonn af álgjalli og unnin úr því 973 tonn af áli.

Fjárfestar sem hafa áhuga á að kaupa hlut Hamla í Al eru beðnir um að senda tölvupóst á tölvupóstfangið alur@landsbankinn.is og gera grein fyrir sér. Þeir fá senda til baka trúnaðaryfirlýsingu og við undirritun hennar fást afhent fjárhagsgögn um félagið, þ.e. ársreikningar áranna 2010 og 2011.

Á grundvelli afhentra gagna skulu fjárfestar gera skuldbindandi tilboð í hlutinn og skila því inn á áðurgreint tölvupóstfang fyrir kl. 12:00, föstudaginn 20. júlí 2012.



Til baka