Fréttir og útgáfuefni

- Efnahagsmál - Vikubyrjun

Í vikubyrjun: mánudagurinn 11. júní

Helstu hagtölur síðustu viku

Hagvöxtur á 1. ársfjórðungi nam 4,5% m.v. sama tímabil í fyrra og var hann borinn uppi af nokkuð kröftugum vexti einkaneyslu, sem jókst um 4,2% á ársgrundvelli. Það er svipaður vöxtur og var á síðasta ári en einkaneysla jókst um 4% milli 2010 og 2011.

Í vikunni birti Seðlabankinn skýrslu um Fjármálastöðugleika. Þar kom fram að bankinn telur að innlendur efnahagsbati haldi áfram. Skuldsetning heimila og fyrirtækja sé að minnka en er samt sem áður of há. Efnahagsástandið er enn viðkvæmt vegna versnandi verðbólguhorfa, aukinnar óvissu á evrusvæðinu og ýmissa annarra áhættuþátta.

Laun á fyrsta ársfjórðungi hækkuðu að meðaltali um 10,3% frá fyrra ári samkvæmt tölum frá Hagstofunni. Hækkun á almennum vinnumarkaði var 11,1% en 8,6% hjá opinberum starfsmönnum.

Helstu hagtölur þessa viku

Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður tilkynnt á miðvikudaginn. Hagfræðideild telur að stýrivöxtum verði haldið óbreyttum en að vaxtahækkunarferlinu sé þrátt fyrir það ekki lokið. Sjá nánar í Hagsjá 8. júní 2012
Á mánudaginn birtir Hagstofan upplýsingar um fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi þessa árs. Á þriðjudaginn birtir Vinnumálastofnun atvinnuleysistölur fyrir maí.

Hagtölur 11. júní

Markaðsupplýsingar 11. júní

Mynd vikunnar

Fjárfesting á 1. ársfjórðungi 2012 var 12,5% af vergri landsframleiðslu (VLF) og nam vöxtur fjármunamyndunar 9,3% milli ára. Fjárfesting er þó enn undir sögulegu meðaltali og vöxturinn tekur hægt við sér.



Til baka