- Fréttir og tilkynningar
Þjónustuheimsóknir á vegum Landsbankans
Eins og fram hefur komið, þá hefur Landsbankinn ákveðið að hagræða í rekstri sínum með aðgerðum sem ná jafnt til landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis, útibúa og höfuðstöðva. Töluvert hefur verið um þessar aðgerðir fjallað í fjölmiðlum, sérstaklega lokun útibúa og vill Landsbankinn því koma eftirfarandi á framfæri.
Landsbankinn mun halda úti þjónustuheimsóknum til þeirra staða þar sem breyting hefur orðið og afgreiðslustöðum verið lokað. Þessar heimsóknir miðast einkum við eldri borgara og aðra sem ekki eiga heimangengt. Góð reynsla er af slíkum heimsóknum þar sem þær hafa verið reyndar.
Þjónustuheimsóknir verða á eftirtöldum stöðum:
Vestfirðir
Flateyri: Aðstaða eldri borgara, Hafnarstræti 11,
alla þriðjudaga kl. 15.00 - 16.00.
Fyrsta heimsókn er 12. júní.
Súðavík: Húsnæði Landsbankans, Grundarstræti 3,
alla fimmtudaga kl. 15.00 - 16.00.
Fyrsta heimsókn er 14. júní.
Bíldudalur: Lækur félagsstarf aldraðra, Sæbakka 4,
alla miðvikudaga kl. 14.30 - 15.30.
Fyrsta heimsókn er 6. júní.
Reykhólahreppur: Skrifstofa Reykhólahrepps Maríutröð 5a,
alla miðvikudaga frá kl. 13.00 - 16.00
og dvalarheimilinu Barmahlíð frá kl. 11:30 - 12.00.
Þjónustan hefur verið veitt undanfarin ár og mun halda áfram.
Vesturland
Grundarfjörður: Dvalarheimilið Fellaskjól, Hrannarstíg 18,
alla miðvikudaga 13.30 - 14.30.
Fyrsta heimsókn er 13. júní.
Austurland
Eskifjörður: Húsnæði Landsbankans, Strandgötu 47,
alla þriðjudaga kl. 13.00 - 14.30.
Fyrsta heimsókn er 12. júní.
Fáskrúðsfjörður: Húsnæði Landsbankans, Skólavegur 57,
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 10.15 - 13.00.
Fyrsta heimsókn er 6. júní.
Landsbankinn mun meta reynsluna af þessu fyrirkomulagi í haust.
Til baka