4 júní 2012 - Efnahagsmál - Vikubyrjun
Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands kom út í vikunni. Seðlabankastjóri lagði til að vextir yrðu hækkaðir um 0,5%. Fjórir af fimm nefndarmönnum studdu tillögu hans. Sá sem greiddi atkvæði gegn henni taldi rétt að vextir yrðu hækkaðir um 0,75%. Hann taldi að nefndin væri þegar orðin of sein í að draga úr slaka peningastefnunnar og því væri þörf fyrir meiri hækkun. Allir nefndarmenn voru sammála um að nauðsynlegt yrði að halda áfram að draga úr slaka peningastefnunnar eftir því sem efnahagsbati eykst. Dragi ekki úr verðbólgu á næstu mánuðum yrði að óbreyttu að hækka vexti frekar til að tryggja að verðbólga leiti á ný í markmið.
Í vikunni birti Hagfræðideild uppfærða þjóðhags- og verðbólguspá. Hagvaxtarhorfurnar næstu 3 árin eru í stórum dráttum svipaðar og í þjóðhagsspá Hagfræðideildar í nóvember, þ.e. reiknað er með hóflegum hagvexti á næstu þremur árum. Meginbreytingin frá nóvemberspánni er hinsvegar að verðbólguhorfurnar hafa versnað umtalsvert. Sjá nánar í Vegvísi - maí 2012.
Á miðvikudag birtir Seðlabankinn fjármálastöðuleika skýrslu. Á föstudag birtir Hagstofan fyrsta mat sitt á landsframleiðslunni á 1. ársfjórðungi 2012.
Hagtölur 4. júní
Markaðsupplýsingar 4. júní
Í vikunni spratt aftur upp umræðan um bólumyndun á húsnæðismarkaði hér á landi. Á myndinni sést annars vegar raunverðsvísitala húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu (leiðrétt með vísitölu neysluverðs án húsnæðis) og hins vegar hlutfall á milli vísitölu húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu og vísitölu launa. Út frá þessum gögnum er ekkert sem bendir til þess að verðbóla sé byrjuð að þenjast út á fasteignamarkaðinum.