7 maí 2012 - Fréttir og tilkynningar
Ríkissjóður Íslands gaf út skuldabréf að fjárhæð 1 ma. Bandaríkjadala (124 ma. íslenskra króna) fimmtudaginn 3. maí síðastliðinn. Skuldabréfin eru til 10 ára (á gjalddaga 11. maí 2022) og bera 5,875% fasta vexti. Þessi útgáfa, ásamt 1 ma. Bandaríkjadala útgáfu ríkisins í júní í fyrra, virðist staðfesta gott aðgengi ríkissjóðs að erlendum lánsfjármörkuðum. Sjá nánar í Hagsjá frá 4. maí.
Samkvæmt tölum sem Hagstofan gaf út í vikunni voru gistinætur á hótelum í mars 134.000 samanborið við 97.300 í mars 2011, fjölgar um 38% milli ára. Fjölgun gistinátta erlenda gesta var 45% en gistinóttum Íslendinga fjölgaði um ríflega 17%. Gistinætur erlendra gesta voru um 77% af heildarfjölda gistinátta í mars.
Á miðvikudag (9. maí) heldur Seðlabanki Íslands gjaldeyrisútboð sem er hluti í áætlun um afléttingu gjaldeyrishaftanna. Í vikunni birtir Seðlabankinn einnig nokkra áhugaverðar hagtölur svo sem um stöðu lífeyrissjóða (mánudag), efnahag Seðlabankans (þriðjudag) og erlenda stöðu Seðlabankans (fimmtudag).
Hagtölur
Markaðsupplýsingar
Á mynd vikunnar sjáum við endurgreiðsluferill erlenda lána ríkissjóðs og Seðlabankans ásamt stöðu gjaldeyrisvarasjóðsins.