Fréttir og útgáfuefni

- Fréttir og tilkynningar

Vel sóttur fundur um þjónustu með flýtibíla

Nýr valkostur í samgöngumálum, svokallaðir flýtibílar (e. car sharing), var kynntur á opnum fundi í Tjarnarbíói í Reykjavík þann 20. mars. Yfirskrift fundarins var, „er framtíð flýtibílum?“ og var hann vel sóttur. Fjallað var um uppbyggingu þessa nýja valkosts í samgöngum en flýtibíla má finna víða erlendis. Slíka bíla er hægt að leigja til lengri eða skemmri tíma á einfaldan hátt og draga þannig verulega úr þörf fyrir annan bíl á heimili.

Að fundinum stóðu fyrirtæki sem hafa áhuga á að koma á slíkri þjónustu hérlendis en það eru Landsbankinn, Advania, Alcoa, Fjarðaál, Íslensk nýorka, Landspítalanum, Landsvirkjun, Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavíkurborg. Allir þessir aðilar hafa hug á því að nýta flýtibíla í eigin rekstri eða fyrir starfsmenn utan vinnutíma.

Á fundinum ræddi Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, um kostnaðinn við að eiga bíl á Íslandi og tók dæmi af Toyotu Corollu en rekstur hennar kostar um 1,3 milljón króna á ári. Kristín Soffía Jónsdóttir, varaformaður Umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar fjallaði um samgöngukerfi borgarinnar og sagði það markmið borgaryfirvalda markmið borgarinnar væri að draga úr umferð í borginni með aukinni gjaldskyldu, bættum almenningssamgöngum og fjölgun hjólastíga.

Þá kynnti Finnur Sveinsson, sérfræðingur í samfélagslegri ábyrgð hjá Landsbankanum, þá möguleika sem felast í flýtibílum og greindi frá því hvernig Gautaborg innleiddi slíkt kerfi.

Í kjölfar erinda framsögumanna fóru fram pallborðsumræður sem Ellý Katrín Guðmundsdóttir, Borgarritari Reykjavíkurborgar stýrði. Auk fyrirlesara tóku Ástgeir Þorsteinsson frá Frama, Sigrún Helga Lund frá „Bíllaus lífstíll“, og Einar Kristjánsson hjá Strætó þátt í umræðunum.

Finnur Sveinsson, sérfræðingur í samfélagslegri ábyrgð hjá Landsbankanum.

Kristín Soffía Jónsdóttir, varaformaður Umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar.

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.



Til baka