Fréttir og útgáfuefni

- Fréttir og tilkynningar

Fermingarkort Landsbankans

Landsbankinn býður nú viðskiptavinum sínum upp á sérstakt Fermingarkort, ætlað sem gjöf fyrir fermingarbarnið. Fermingarkortið er fyrirframgreitt inneignarkort. Kortið fæst endurgjaldslaust í öllum útibúum bankans og hægt er að leggja inn á það upphæð að eigin vali. Kortinu fylgir fallegt gjafakort og umslag.

Meginmarkmið Landsbankans með útgáfu kortsins er að hvetja fermingarbörn til að spara. Landsbankinn greiðir fimm þúsund króna mótframlag þegar fermingarbarn leggur inn 30 þúsund krónur eða meira inn á Framtíðargrunn hjá bankanum. Hægt er að leggja inn, annað hvort í peningum eða með Fermingarkortinu. Einnig er hægt að taka inneignina út hjá gjaldkera í útibúum bankans.



Til baka