Fréttir og útgáfuefni

- Fréttir og tilkynningar

Sólning Kópavogi ehf. til sölu

Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hf., hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í Sólningu Kópavogi ehf. sem rekur hjólbarðaverkstæði og annast innflutning á dekkjum.

Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem sýnt geta fram á fjárfestingagetu að upphæð 100 milljónir króna auk viðeigandi þekkingu og reynslu af fjárfestingum og rekstri. Þeim fjárfestum sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu ber að fylla út trúnaðaryfirlýsingu og eyðublað fyrir fjárfesta.

Söluferli í tveimur þrepum

Þeir fjárfestar sem uppfylla skilyrði fyrir þátttöku á fyrra stigi söluferlisins fá afhent ítarleg kynningargögn um Sólningu. Gögnin verða aðgengileg frá og með þriðjudeginum 21. febrúar 2012. Á grundvelli þeirra gagna skulu bjóðendur leggja fram tilboð en frestur til að skila því rennur út kl. 12:00, mánudaginn 12. mars 2012.

Þeim fjárfestum sem skila inn hagstæðustu tilboðunum að mati seljanda á fyrra stigi söluferlisins verður boðin þátttaka í öðru stigi söluferlisins. Þá fá fjárfestar aðgang að gagnaherbergi, þeim gefst kostur á að framkvæma áreiðanleikakönnun á félaginu og boðið verður upp á fundi með stjórnendum félagsins. Tímafrestur til að skila inn skuldbindandi tilboði í síðari hluta söluferlisins rennur út kl. 12:00, fimmtudaginn 29. mars 2012. Stefnt er að því að söluferlinu ljúki fyrir lok apríl 2012.

Markmið eiganda er að fá sem hagstæðast verð fyrir hlutaféð sem til sölu er og að salan sé endanleg og óafturkræf. Rétt er að árétta að Hömlur ehf. áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum, breyta söluferlinu og/eða stöðva það eftir atvikum. Öllum þátttakendum verður tilkynnt um hugsanlegar breytingar á ferlinu og rökstuðning fyrir þeim.

Fyrirspurnir um söluferlið og þátttöku má senda á solning@landsbankinn.is. Til að fá aðgang að söluferlinu skal skila inn umbeðnum gögnum undirrituðum í lokuðu umslagi til Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans, Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík, merkt Söluferli - Sólning og á tölvutæku formi á netfangið solning@landsbankinn.is.

Um Sólningu

Fyrirtækið Sólning var stofnað árið 1969 og rekur eina umfangsmestu hjólabarðaþjónustu landsins. Fyrstu áratugina var fyrirtækið fyrirferðarmikið í sólningu fólks- og vörubíladekkja en það hóf síðar innflutning á nýjum og sóluðum dekkjum. Sólning rekur í dag fjögur verkstæði; á Smiðjuvegi í Kópavogi, Fitjabraut Njarðvík og Gagnheiði á Selfossi ásamt því að reka verkstæði undir merkjum Barðans í Skútavogi í Reykjavík og lager að Smiðjuvegi. Frá upphafi hefur höfuðmarkmið fyrirtækisins verið að veita viðskiptavinum góða þjónustu með sérþjálfuðu starfsfólki, fullkomnum tækjakosti og gæða vörumerkjum.

Tengd skjöl

Sölulýsing

Trúnaðaryfirlýsing

Upplýsingar um fjárfesti



Til baka