- Fréttir og tilkynningar
Vefur Landsbankans tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna
Landsbankinn hefur hlotið tvær tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2011. Vefur bankans var tilnefndur í flokkunum "Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn" og "Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn".
Tilnefnt var til verðlauna í 7 flokkum en að auki verða veitt verðlaun fyrir:
- Bestu hönnunina
- Frumlegasta vefinn
- Athyglisverðasta vefinn að mati félaga í SVEF
- Besta vef Íslands 2011
Dómnefnd skipuð fagfólki í vefmálum velur vefi í úrslit þessara eftirsóttu verðlauna.
Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.
Verðlaunin verða afhent í Tjarnarbíói föstudaginn 3. febrúar kl. 17.00.
Sjá alla vefi í úrslitum
Um vef Landsbankans
Nýr vefur Landsbankans opnaði 15. nóvember 2011. Vefurinn er einn stærsti þjónustu-, upplýsinga-, fræðslu- og fjármálavefur landsins fyrir einstaklinga, fyrirtæki og fjárfesta.
Nánari upplýsingar um vefinn
Fyrri árangur á Íslensku vefverðlaununum
Til baka