Efnahagsmál - Í vikubyrjun - 06. febrúar 2012 10:38
Í vikunni birti Hagstofa Íslands tölur um vöruskiptin í janúar 2012. Vöruskiptin voru hagstæð um 12 ma.kr samkvæmt bráðabirgðatölum. Jafnframt var birt leiðrétting á bráðabirgðatölum um vöruskiptin 2011, en samkvæmt þeim var verðmæti útflutnings í desember 7,6 ma.kr. minni en áður birtar tölur bentu til.
Fjárfestatengsl - 03. febrúar 2012 19:22
Vefur Landsbankans hlaut tvenn verðlaun þegar Íslensku vefverðlaunin voru afhent þann 3. febrúar 2012. Vefurinn var valinn besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn og besti þjónustu- og upplýsingavefurinn.
Efnahagsmál - Hagsjá - 03. febrúar 2012 15:24
Veruleg óvissa er um stýrivaxtaákvörðun þann 8. febrúar. Þar togast á annarsvegar yfirlýsing nefndarinnar frá því í desember að „núverandi vaxtastig virðist um það bil við hæfi á komandi mánuðum" og hins vegar hröð aukning kjarnaverðbólgunnar, veiking krónunnar og vísbendingar um mun kröftugri hagvöxt á liðnu ári en spáð hafði verið.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré