Fjárfestatengsl - 10. júní 2013 18:25
Landsbankinn hefur lokið fyrstu útgáfu sinni á sértryggðum skuldabréfum. Heiti útgáfunnar er LBANK CB 16 og eru bréfin óverðtryggð með föstum 6,30% vöxtum til þriggja ára. Samhliða útgáfunni lækkar Landsbankinn kjör á óverðtryggðum íbúðalánum með föstum vöxtum til 36 mánaða úr 7,50% í 7,30%.
Fjárfestatengsl - 30. maí 2013 16:40
Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf., sem er í eigu Landsbankans hf., hefur ákveðið að bjóða til sölu 325.000.000 hluti í Regin hf., sem samsvarar 25% af útgefnum hlutum í félaginu. Útgefnir hlutir í Regin hf. eru samtals 1.300.000.000 og er hver hlutur 1 kr. að nafnverði.
Fjárfestatengsl - 23. maí 2013 17:43
Rekstrarhagnaður Landsbankans nam 8,0 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins 2013, samanborið við 7,7 milljarða króna á sama tíma á árinu 2012. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu eftir skatta var 14,0% samanborið við 15,2% arðsemi á sama tíma á árinu 2012.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280 Swift: NBIIISRE
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Starfsfólk Veftré