Fréttir

Fjárfestatengsl - 23. maí 2013 17:43

Hagnaður Landsbankans 8 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2013

Rekstrarhagnaður Landsbankans nam 8,0 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi ársins 2013, samanborið við 7,7 milljarða króna á sama tíma á árinu 2012. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu eftir skatta var 14,0% samanborið við 15,2% arðsemi á sama tíma á árinu 2012.


Nánar

Fjárfestatengsl - 23. maí 2013 15:36

Landsbankinn gefur út áhættuskýrslu

Landsbankinn hefur gefið út áhættuskýrslu fyrir 2012. Í henni er gerð ítarleg grein fyrir öllum þáttum áhættustýringar bankans og þeim aðferðum sem hann beitir við mat á áhættu. Með áhættuskýrslunni fæst enn gleggri mynd af stöðu bankans en áður.


Nánar

Fjárfestatengsl - 08. maí 2013 10:06

Landsbankinn fær heimild til útgáfu sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn hefur fengið leyfi frá Fjármálaeftirlitinu til útgáfu sértryggðra skuldabréfa skv. lögum nr. 11/2008 og verða bréfin skráð í Kauphöll innan skamms tíma. Útgáfan er fyrst og fremst ætluð sem fjármögnun fyrir óverðtryggð íbúðalán bankans.


Nánar