Fréttir

- Fjárfestatengsl

Ákvörðun ESA staðfestir öflugt uppbyggingarstarf Landsbankans

Landsbankinn fagnar niðurstöðu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem með ákvörðun sinni í dag hefur samþykkt ríkisaðstoð sem veitt var til endurskipulagningar á Landsbankanum í kjölfar hruns fjármálakerfisins árið 2008. ESA hefur komist að sambærilegri niðurstöðu að því er varðar Arion banka og Íslandsbanka.

Í tilkynningu ESA er lýst ánægju með þann árangur sem Landsbankinn hefur náð við endurskipulagningu bankans. Landsbankinn búi nú við sterka eiginfjárstöðu og hafi náð árangri við endurskipulagningu lána hjá skuldsettum viðskiptavinum sínum. ESA segir einnig skipta miklu máli að umtalsverðar umbætur hafi verið gerðar á löggjöf og reglum um fjármálastarfsemi á Íslandi.

„Þessi ákvörðun er afar þýðingarmikil fyrir Landsbankann,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. „Niðurstaðan felur í sér staðfestingu á þeim mikla árangri sem náðst hefur við endurskipulagningu bankans. Þetta er traustsyfirlýsing fyrir bankann og mikilvægur áfangi fyrir starfsmenn sem hafa unnið að uppbyggingu Landsbankans. Við höfum átt gott samstarf við ESA vegna málsins og veitt alla aðstoð sem óskað hefur verið eftir,“ segir Steinþór.

Ríkisaðstoð til fjárfestingarsjóða réttlætanleg

ESA kynnti ennfremur í dag ákvörðun þess efnis að ríkisaðstoð til átta fjárfestingarsjóða í október 2008, þ.m.t. til fimm fjárfestingarsjóða hjá þáverandi rekstrarfélagi bankans, Landsvaka, væri samræmanleg EES-samningnum. Í ákvörðun ESA er talið að röskun á efnahag Íslands á umræddum tíma hafi verið alvarleg og því hafi ríkisaðstoð verið réttlætanleg.

Ákvörðun ESA verður birt á vef stofnunarinnar innan mánaðar.

Tilkynning ESA um ríkisaðstoð við Arion banka og Landsbankann

Tilkynning ESA um ríkisaðstoð til fjárfestingarsjóða



Til baka