Fréttir

- Fréttir og tilkynningar

Landsbankinn semur við Vodafone

Vodafone mun annast alla símaþjónustu fyrir Landsbankann næstu þrjú árin, samkvæmt nýjum samningi milli fyrirtækjanna. Um er að ræða endurnýjun á eldri samningi en Landsbankinn gekk til samninga við Vodafone að undangenginni verðkönnun á  alhliða fjarskiptaþjónustu.

Samningurinn nær til allrar símaþjónustu, bæði farsíma- og fastlínuþjónustu, auk þess sem Vodafone mun sjá um heimanettengingar starfsmanna Landsbankans. Nýi samningurinn er umfangsmeiri en sá gamli, þar sem að  nú verða um 180 farsímanúmer í eigu bankans sem áður voru þjónustuð  af öðrum símafyrirtækjum  flutt yfir til Vodafone.

Samningurinn handsalaður

Jensína Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar hjá Landsbankanum, og Jóhann Másson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Vodafone, handsala nýja samninginn.


Hópmynd af þeim sem komu að samningagerðinni

Auk Jensínu Böðvarsdóttur, framkvæmdastjóra þróunar hjá Landsbankanum, og Jóhanns Mássonar, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs hjá Vodafone (sitjandi) eru á myndinni f.v. Ragnhildur Guðmundsdóttir og Trausti Guðmundsson frá Vodafone, Smári Sveinsson, Hallgrímur Beck, Magnús, Ingi Örn Geirsson og Guðni B. Guðnason frá Landsbankanum.



Til baka