Vörðuráðgjöf

Heildstæð fjármálaráðgjöf

Vörðuráðgjöf Landsbankans er heildstæð fjármálaráðgjöf sem býðst Vörðufélögum án endurgjalds. Ráðgjöfin miðast við að fá heildarsýn á fjármálin og móta fjárhagslega aðgerðaráætlun með skammtíma- og langtímamarkmiðum.

Saman setjum við upp stöðumat til að meta heildarstöðu fjármála heimilisins og setjum fjárhagsleg markmið út frá því, sem hægt er að endurskoða árlega. Þannig færð þú góða yfirsýn yfir þá þætti sem mynda grunninn að fjármálum heimilisins.

Grunnþættir fjármála heimilisins

  • Eignir og skuldir
  • Tekjur og gjöld
  • Tryggingar
  • Lífeyrismál

Betri leið til að greiða niður lán

Eitt af verkfærum Vörðuráðgjafarinnar er það sem við köllum snjóboltareiknivélina. Hana notum við til að setja upp áætlun til að flýta niðurgreiðslu lána heimilisins. 

Þannig er hægt að hraða eignamyndun og lækka vaxtakostnað umtalsvert með lítilli fyrirhöfn. Afborganir lána eru festar í ákveðinni upphæð og allt umfram venjubundnar afborganir fer í að greiða inná það lán sem ber hæstan kostnað eða það lán sem þú vilt greiða upp hraðast. Þegar greiðslubyrði þess láns lækkar er munurinn notaður til að greiða inn á næsta lán og svo koll af kolli þangað til markmiðunum er náð eða lánin öll uppgreidd. Snjóboltaáhrifin má auka til muna með því að hækka aukagreiðsluna inn á lánin enn frekar.